15apríl

Þið eruð fallegt par. Má bjóða ykkur upp á afbrigðilegt kynlíf?

Kvót í Helga Snævar við parið sem fór hring í skíðalyftunni í Hlíðarfjalli.

Ritandinn hefur náð tökum á mér og ég verð að sleppa af mér beislinu.

Undanfarna daga hef ég látið fara lítið fyrir mér.  Ég er í fríi í vinnunni fram yfir sauðburð þar sem að ég þurfti nauðsynlega á því að halda til þess eins að halda geðheilsunni.  Við karl föður minn erum svo að fara að smíða suðaburðarhús einhvers konar og svo brestur sauðburður á með sínum látum.  Hlakka nú bara til þar sem að ég sá ekki lamb fæðast (berast?) í fyrra.

  Um helgina lagði vaskur hópur drengja af stað á höfuðstað Norðurlands Akureyrina.  Þeim hópi tilheyrðu Ég, Bogi Kárason, Bergsteinn Ingólfsson, Guðmundur Bergsson, Helgi Ólafsson, Haukur Guðmundsson Leifur Láka og Siggi Sig.  Þar vorum við á gistiheimilinu Lónsá og fórum þar til þess að fagna að einhverjir skrækjandi framhaldskólanemar voru að þenja raddböndin.  Við innbyrgðum mikið magn af alkahóli sem var ágætt að ýsum leyti.  Á föstudag fór megnið af okkur á Sjalann en ég byrjaði á að eyða kvöldinu með Verzlingum að sýna þeim bæinn og fór m.a. að telja með þeim kirkjutröppurnar.  Þessar verzló stúlkur voru þær sem voru með okkur á Lónsá.  Drengirnir sem voru með þeim og okkur á Lónsá vil ég ekki tala um.  Það er sennilega búið að lóga þeim og maður á ekki að tala illa um þá látnu.  Jæja svo var haldið í sjallann fyrir rest á Haffa Haff held ég, það var bara fínt og ágætt kvöld kláraðist svo með því að við Bergsteinn elduðum dýrindis málsverð er heim var komið en því miður í fötum svona um 6 leytið.

  Svo var drifist upp um hádegið. Þá fórum við á skíði.  Það er mjög almennur misskilningur að skíði séu ekki eins svöl og bretti.  Ég hef sagt það áður og stend og fell með því að bretti eru tískubóla sem er svo útkreist og sprunginn að það er enginn gröftur eftir þar inni.  Ég hef sagt þetta lengi.  Þetta er alveg eins og með: Myspace(berst við að halda því fra mér),  Bónus (það fæst allt í kaupfélaginu), Pétur Jóhann Sigfússon og sundstuttbuxur.  Ég hélt sem sagt "kúlinu" uppi í skíðaferðinni.  Reyndar sá einn hversu svalur ég var á skíðunum og fór og lagði brettinu og leigði sér skíði.  Honum var fyrirgefið.  Eftir skíðaferð var farið í sund þar sem ég hélt náttúrulega uppi "kúlinu" á ný með því að vera eini maðurinn í sundskýlu.   Hún var blá merkt sundlauginni á Akureyri.

  Síðan fórum við og horfðum á Útsvar og eftir það söngvakeppnina.  Ég hefði hvergi annars staðar viljað vera við það og var það gjörsamlega geggjað sérstaklega seinni parturinn og ég kynntist miklu magni af áhugaverðu fólki á þeim tíma.  Sáttur með sigurvegarann og var mikið stuð á verzlingunum eftir að úrslitin voru kunngjörð. 
  Svo var brunað á Nýdanskarball í sjallanum.  Það var fínt og mikið dansað og sprellað.   Eftir það tók við partý á Lónsá þar sem ýmislegt gerðist.  Fyrst byrjaði Elvar á því að festast í barnastól.  Og með festast meina ég festast.  Eftir mikið tog og snúninga margs konar og mikið magn af durex sleipiefni vorum við að fara í það að skera af manninum löppina.  En þá kom húsráðandi sem hafði vaknað af hlátrinum í okkur og bjargaði Elvari greyinu vopnaður sexkanti og skrúfaði stólinn í sundur. 
  Síðan drakk ég pissið úr Boga.  Það lyktaði svo vel.
Fórum að sofa svona um 8 leytið

  Svo dreif maður sig á fætur kl 11 til þess að taka til.  Eftir heljarinnar tiltekt fórum við og góndum á fótbolta og þaðan var haldið heim.  Vil þakka mönnum fyrir ferðina og skemmtunina sem henni fylgdi

   Nóg í bili
           
             Eyþór

15. apríl 2008 klukkan 00:25
Eyþór Stefánsson
5 athugasemdir
30nóvember

saga úr hversdagsleikanum

Hver kannast ekki við það þegar maður situr í lengri tíma og er að gera þarfir sínar, stendur síðan upp og þykist vera klár í að halda áfram dagsins amstri.  En................. þegar þú ert búinn að girða þig og kominn út meðal umheimsins á ný finnuru einhvern kaldan hroll byrja að umlykja á þér rasskinnina.  Þú finnur þetta stöku sinnum og vandar þig við að hann fari ekki að dreifa sér um allan líkamann.  Þegar þessi stöðuga barátta er búinn að taka af þér tíma og þrek þá er síst þú væntir læðist hrollurinn niður buxnaskálmina.  Þá eru góð ráð dýr.  Þú hefur þig afsakaðan og ferð eitthvert afsíðis.  Þar hristiru skálmina þar til að hrollvaldurinn er kominn fram í dagsljósið.  Þarna sérðu þessa agnarögn, sparð sem búið er að leika þig grátt síðustu mínúturnar.  En staðreyndin er nú sú að þetta veldur þér mikilli ánægju því að í barnslegri trú telur þú þig hafa fundið súkkulaðirúsínu.  En þegar þú kemst að því að þetta er ekki þannig á bragðið missir þessi hugmynd þín sína barnslegu fegurð og veröldin verður köld og angurvær.

  Veröld mín í dag er köld og angurvær.  Ég borðaði súkkulaðirúsínu í gær.
30. nóvember 2007 klukkan 18:39
Eyþór Stefánsson
2 athugasemdir
21nóvember

Sameiginleg tilkynning Frá Lögreglunni á Egilsstöðum og mér

Góðir hálsar

Út hefur spurst um glæp. Glæpur þessi er margslunginn og flókinn og á sér langa sögu sem snýr að skipulagi hans. Það var svindlað á mér í Trivial Pursuit og það var mér dýrkeypt. En enginn glæpur er fullkominn og allt kemst upp að lokum.

Tiltekið brot átti sér stað að Kelduskógum þann 10. nóvember um 01:00 að staðartíma. Afbrotamenn eru frægir afbrotamenn frá Fáskrúðsfirði. Þeir eru það sem við heiðvirða fólkið köllum stundum ,,góðkunningja lögreglunnar". Þeir eru eftirtaldir:






Bergsteinn Ingólfsson a.k.a Beggmundur Jakki
Þessi maður er líklegur til að bera á sér vopn. Ekki láta sakleysislegt Dvergaútlitið blekkja ykkur því inn í honum búa illir andar. Gengið hafa sögusagnir í gegnum árin þess efnis að sem unglingspiltur hafi hann selt sálu sína Djöflinum í skiptum fyrir piparmyntusleikjó.
Hann fetaði nú reyndar seint inn á glæpabrautina en lét þar afvegaleiðast af höfuðpaur hópsins. Hann byrjaði eftir fermingu að stela úr sælgætisbörum landsins. Enda er vandfundin sjoppa þar sen ekki hangir mynd af Jakkanum þar sem starfsfólki er gert skylt að meina honum inngöngu. Tékkið á því í næstu sjoppuferð. Eftir nokkurra ár í þessari rútínu ágerðust glæpir hans til muna. Þá fór hann að stela piparmyntusleikjóum. Á sakaskrá hans bættust seinna meir við: líkamsárásir á börnum, Dýrameiðingar, Dýrkun á hindurvitnum, stórfellt smygl, vændi (sem vændiskona) og föðurlandssvik og síðast en ekki síst svindlaði á mér í Trivial.
Listinn er ótæmandi






Helgi Snævar Ólafsson
Höfuðpaurinn sjálfur. Á hann sér langa sakaskrá sem verður seint rakin til fulls. Byrjaði barnungur að stela Snickersum af jafnöldrum sínum. Þegar hann sá hvers hann var megnugur endaði þannig að hann stal hreinlega öllu af öllum jafnöldrum sínum hvort sem það var klæðnaður þeirra, tannburstar, videospólur eða Andrésarblöð. Allar mæður á Fáskrúðsfirði hafa bankað upp til þess að endurheimta þýfið en stundum var krakkinn búinn að selja eða skipta því.
Á unglingsaldri gerðist hann hórkarl (pimp). Gerði hann út á flestar konur bæjarins hvort sem þær vissu af því eður ei. Hans helstu viðskiptavinir eru samsveitungar hans flestir og Búffi.
Hans helstu afrek á glæpabraut sinni eru vopnuð rán, spilling, fjárdráttur, mannsal, akstur utanvegar, kasta af sér þvagi á almannafæri, innflutningur á neftóbaki, guðlast á sunnudegi og síðast en ekki síst svindlaði á mér í Trivial.


Birkir Snær Guðjónsson a.k.a. Birk Mckirk
Þessi maður er ekki til samkvæmt lögreglunni. Hann hefur búið hagi sína það vel að enginn veit af honum. Það er ekki til mynd af honum á veraldarvefnum. Enginn veit hvernig hann lítur út í raun og veru. Ástæðan er einföld. Hver man ekki eftir bréfaklemmufaraldrinum 99? Þegar Birk fór í það með skipulegum hætti að verða sér út um allar bréfaklemmur landsins og selja þær svo á uppsprengdu verði á svörtum markaði. Hann hefur ekki setið þann dóm af sér enn og leitar Lögreglan hans um hóla og hæðir. Annars hefur drengurinn (ef það er hans rétta kyn) nokkuð hreina samvisku en svo hefur hann gert eitt annað. Svindlaði á mér í Trivial.

Ef einhver verður var við þessa menn skal hann skilyrðislaust hringja á Lögregluna á Egilsstöðum í síma 470 2140.


Þessi maður er samt sennilega einn sá hættulegastiHlæjandi og frændi hans líka





Ég þakka þeim er hlýddu
21. nóvember 2007 klukkan 22:39
Eyþór Stefánsson
3 athugasemdir
07nóvember

Hvernig á að leika þurrk?

Halló

Þá hefur ritandinn náð tökum á mér á ný.

  Helgin mín var bara alveg ágæt.  Fékk reyndar einn kjánahroll.  Var slakur á föstudagskvöld, en skellti mér svo eftir vinnu á laugardeginum í djammgallann, heim í matarboð þar sem Beggmundur Jakki, Helgi Snævar  og Guðmundur Þorsteinn voru aðalkokkar kvöldsins og elduðu þeir dýrindis gæs.
  Eftir mjög góðan mat fórum við í trivial og eftir það út á lífið,  þar tók ég púlsinn á bændahátíðinni sem var reyndar mjög stuttlega tekinn.  En sá og gerði allt sem þurfti að gera sem var:  Taka hring og hitta fólkið, Tjútta og láta Kalla Þránd skamma mig.  Það síðastnefnda var afar ánægjulegt.  32" reiðin var nú einmitt tengd því.  Tommumálið á reiði þinni færðu út með að sjá hversu stórt sjónvarp þú kaupir þér til þess að halda lífsviljanum.  Ég þurfti 32" til að tóra.  Það vildi þannig til að ég held að við Kalli höfum báðir stigið vitlausu megin fram úr einn daginn og vorum báðir frekar geðstirðir þann daginn sem endaði í miklu geðvonskukasti þar sem allt var á afturfótunum.  Þá hentist ég í kaffinu og keypti mér sjónvarp og er á leiðinni í það að senda Kalla reikninginn. En já ég var að tala um laugardagskvöldið, eftir bændahátíðina var það pepes þar sem var samankomið einvalalið spíra og pólverja.  Við héldum heim snögglega í actionary þar sem við Bára Dögg vorum í því að skilja hvort annað.  Einhvern veginn tókst henni að skilja mig þegar ég lék með tilþrifum: þurrk, tunglgöngu og ótrúlegustu hluti hreinlega.   Minnti mig á gamla góða tíma frá Laugum þegar ég lék fæðingardeild af innlifun.  Hápunktur og leiksigur kvöldsins var hins vegar Bergsteinn að leika Kanarýeyjar.

  Lel- klúbburinn (láta sér ekki leiðast)stendur enn fyrir sínu og erum við farnir að spila körfubolta af miklum móði við atvinnumenn í Brúarási.  Gerum við það tvisvar í viku og svo er það Lomberkvöld sem við reynum að taka einu sinni í viku.  Svo er bara stefnt á SKriðuklaustur á uppskeruhátíð LEL (léttir erum í Lomber).  Svo er á döfinni ferð á jólahlaðborð, ferð á útsölur,  og eigum við ekki að segja frekar fyrr en seinna verður opnuð ný og endurbætt Frissabúð. 

 Mér láðist jú vissulega að telja upp prinsa og prinsessu partýið hjá Dagmari frænku minni, það var ljómandi ágætt og einnig láðist mér að nefna það göfuga afrek að ég hljóp hálfmaraþon í Danmörku.  Það var erfitt og er ef einhver veit það eigi 21 km.  Gerði ég þetta á 2 klst og 3 mínútum betur.  Þetta var svona til þess eins gert að monta mig. 

  Jólin eru að fara detta inn segir Ikea:(

Nóg í bili
 
                            Eyþór     
07. nóvember 2007 klukkan 23:41
Eyþór Stefánsson
4 athugasemdir
27október

Hlaupið á hundavaði svo hratt að maður stígur varla í framlappirnar

Halló halló
Þá hefur maður tekið upp á því að blogga að nýju. Ég hef nú svo sem enga ástæðu til þess nema hvað ég finn fyrir því stundum þegar skriftarandinn kemur yfir mig, en þá hef ég hugsað, sorry no can do, hættur að blogga. En svo fór ég að rifja upp leyniorðin og reddaði þessu bara svo næst þegar andinn kemur yfir mig þá verður það bara tæklað.

Síðan ég bloggaði síðast hefur margt og mikið skeð. Eiginlega það mikið að það er ekki hægt að segja frá því öllu, en ég skal fara á miklu hundavaði yfir það skásta:

-fór að gráta á síðasta fylleríinu í Danmörku. Góður árangur, var samt svona innan skynsamlegra marka samt
- Ég er sem sagt kominn heim úr danaveldi því miður
- fór í 8 daga eða svo til Svíþjóðar til Unnars bróðir mömmu sem var skemmtun eingöngu
- Hróarskelda, þar sem var brotið blað í sögu áfengra drykkja og kassagítarapartýa. Og já þar rigndi líka aðeins
- Kom svo heim og naut sveitalífsins í 10 daga eða svo. Sá ekki eitt lamb fæðast á þessu ári sem var skrýtið
- Fór í sömu gömlu vinnuna hjá Héraðsfirði eingöngu vegna þess að ég saknaði þess að láta skamma mig duglega reglulega.
- Sumir vilja meina að ég hafi komist til manns
- Opnaði nýja og endurbætta Frissabúð. Reyndar er smáfiff eftir og þá verða opnunartilboð!!!! Velunnarar staðarins boði komu sína.
- Sá manninn sem er góður að mála í action-i
- Fór á Akureyri um versló sem var bara nálægt því að vera slakur árangur
- Fór í smalamennskur þar sem mér tókst að labba fjölda kílómetra án þess að sjá kind
- Horfði á marga flytja búslóðaflutningum frá Egilsstöðum. Fór þá í átak ásamt vel völdum einstaklingum. Ber það nafnið Lel (Láta sér Ekki Leiðast)
- Stofnaði ásamt fjórum öðrum Lel félagið (Léttir Erum í Lomber)
- Fór á Airwaves sem var tekið örlítið á því.
- Varð 32" reiður


Þetta er það langur tími að ég er að gleyma einhverju skemmtilegu en það verður þá bara gleymt og grafið. En hef sett mér það markmið að blogga nokkrum sinnum hér í viðbót. Ef einhver rambar hér inn má hann skilja eitthvað eftir sig því það yljar manni um hjartaræturnar. Koma svo ylja mér, mér er svo kalt á geirvörtunni!!!

Nú blivar ekkert að segja hilsen lengur.

Kveðja Eyþór sem langar að vera ennþá í Danmörku og fara þaðan bara svona sirka about aldrei

Thank god for LEL

27. október 2007 klukkan 02:08
Eyþór Stefánsson
6 athugasemdir
07júní

This is no MTV bullshit!!!!!!!! This is fucking Aerosmith world tour!!!!!!!!

  Tilvitnun frá Steven Tyler í gær á hreint ansi góðum tónleikum!!!!  Við þessa setningu hækkaði standardinn á þeim líka til muna.  En alla vega fórum fjögur stykki í gær að sjá Aerosmith og var það hreint magnað, og D-A-D hitaði upp og voru drulluseigir.  Fór þetta fram á fótboltavelli í Randers og var þarna eitthvað um 30000 manns.  Steven Tyler er besti söngvari sem ég hef séð live... punktur.  Hann var rosalegur og algjör töffari líka.  Og Joe Perry á gítarnum var helvíti svalur líka.  Einu vonbrigðin var að þeir tóku ekki Crazy:(  En annars flottir.


 
  En jæja það hefur nú eitthvað skeð á þessum tíma enda langt síðan ég bloggaði,  það vildi nefnilega þannig til að ég var búinn að blogga hér einu sinni langa færslu en hún hvarf.  Ég átti afar erfitt með að fyrirgefa bloggar .is fyrir það en nú eru þeir loksins búnir að afplána sinn dóm og ég búinn að fyrirgefa þeim.  Nú verður gerð önnur tilraun.

  Jæja ýmislegt hefur gerst, t.d. fór ég í ferð með Idrætsunderviser að skoða sérgert íþróttahús fyrir fatlaða.  Þar fengum við að horfa á æfingar hjá fötluðum og vera með.   Var þetta hin mesta skemmtun að horfa á fatlaða fólkið og mongólítana að sýna slíka færni í íþróttum.  VIð prufuðum hjólastólakörfubolta sem var algjör snilld og erfitt og fékk maður að njóta strengja í handleggjunum lengi á eftir.  Svo var prufað hokkí og þar var keyrt um á vélknúnum bílum sem voru með svona hokkístykki framan á sé.  Það er skemmst frá því að segja að allt húsið, mongólítar, fatlaðir og fullkomlega heilbrigt fólk tók sér tíma til að hlæja að okkur hversu óhemju léleg við vorum á þessum tækjum og var ótrúlegt að horfa á fólk sem var í öndunarvél keyra margfalt betur en við enda var það virkilega erfitt að stjórna þessu. Það sem mér fannst merkilegast var að horfa á dverg í borðtennis.  Því að hann var svo góður að hann vann léttilega alla þarna inni.  Spaðinn var eins og hálfur skrokkurinn á honum, hann þurfti að teygja sig til að ná upp á borðið samt vann hann alla.  Helvíti seigur og ég hreinlega gat ekki stillt mig um að stara aðeins meira en góðu hófi gegnir.

  Svo var þarna um þarsíðustu helgi allsvaðalegt karnival í Álaborg.  Fór stærsti hluti skólans á það og í einhverjum grímubúningum.  Þar var byrjað að drekka klukkan 7 um morguninn og hætt um 2 -3 um nóttina.  Það voru alveg ótrúelga margir þarna, Það var byrjað á risaskrúðgöngu og svo var farið í garð þar sem var tónlist og alkahól.  Svo var farið á Jomfru Anne gade sem er djammgatan þarna í Álaborg og drukkið úr sér allt vit. 

  Svo vorum við að sjá um Sundby löb þar sem við kepptumst við að komast sem lengst.  Það var sem sagt opið hús í SundBy sem er svona hliðarstarfsemi NIH.  Alla vega er hérna í sama húsnæði og þeir voru með opið hús.  Gestum og gangandi og hverjum sem var gafst tækifæri til að hlaupa hring sem var kílómetri og hjálpa þannig til.  Ég veit nú ekki hvar við enduðum en það var einhvers staðar í Þýskalandi.  Samtals voru sennilega eitthvað í kringum 500 km farnir eða svo.  Við í Idrætsunderviser skipulögðum hlaupið og sátum vagtina að telja kílómetrana.  Það var helvíti leiðinlegt þegar komu heilu leikskólarnir og ég átti að fara gefa þeim öllum viðurkenningaskjöl.  Í fyrsta lagi er ég varla skrifandi, og í öðru lagi kann ég ekki að skrifa dönsk nöfn.  Andskotans asnar.....

  Um helgina síðustu var Wenneweekend og þar komu vinir allra í heimsókn.  Það var mjög skemmtilegt bara.  Reyndar svaf ég yfir mig á laugardeginum þar sem við áttum að vera keppa en svo var ég eftir hádegið að sjá um streetbasket og útskýrði körfubolta fallega á dönsku.  Svo spiluðum við í "hljómsveitinni" vel nokkur vel valin lög í veislunni sem haldin var um kvöldið.  Svo kom hörmungin sem tók úr mér allan lífsvilja á augabragði.  DJ FREEDOM!!!!!!!!  Hann á einn hittara.  Hann fékk fólkið að heyra 8 - 10 sinnum.   Ég fór inn í herbergi að sofa þegar ég heyrði helvítis lagið í þriðja sinn.

  Hvað meira hefur gerst, það er nú svo margt að ég veit ekki hvar ég á að byrja.  En ætli þetta sé ekki nóg í bili enda er 25 stiga hiti úti og ekki nokkurt vit í því að sitja framan við tölvu eins og assni.

  Hilsen Eyþór
07. júní 2007 klukkan 16:02
Eyþór Stefánsson
4 athugasemdir
15maí

myndbönd

Jæja þá er maður kominn niður á jörðina aftur...

Helgin var mjög skemmtileg og tókst okkur ágætlega upp bara í spilamennskunni það er að segja. Við byrjuðum fjórir inn á sviðinu með Wake me up when september ends. Einn frá Íslandi, einn frá Noregi, einn frá Danmörku og einn frá Grænlandi. Fyrsta lagið gekk svona ágætlega, söngurinn klúðraðist aðeins og Grænlendingurinn var úti á þekju í sólóinu en annars soundar þetta ágætlega ... http://video.google.com/videoplay?docid=8624426552591483401

Jæja eftir þetta fækkuðum við um einn Grænlending og tókum Words. Tókst best að mínu mati og finnst mér þetta bara drullunett...
http://video.google.com/videoplay?docid=37647659144498895

Síðan tókum við Lightning Crashes og tókst það vel fyrir utan að hljóðið ákvað bara að virka ekki á míkrófóninum hjá mér. Skemmtilegt líka hvað ég tók ekkert eftir því en söngvarinn vissi síðan ekkert hvað hann ætti að gera... En það er þó hægt að greina eitthvað örlítið af gólunum í mér
http://video.google.com/videoplay?docid=-5043472502388515418

Síðan vorum við klappaðir upp.... ægilega ægilega gaman. Þá fækkuðum við aftur um einn og tókum Halllelujah. . Tókst bærilega, söngurinn fór aðeins í ferðalag á einum stað.
http://video.google.com/videoplay?docid=-5015690087895728181


En þetta var algjör snilld sérstaklega þar sem að við fengum að nota hljóðfæri ballhljómsveitarinnar, og hjálpuðu þeir okkur mikið en það var gæða danshljómsveitin Turband. Voru allir bara mjög ánægðir með þetta, en þó aðallega söngvarinn og trommarinn sem skemmtu sér konunglega ásamt mér sjálfum.


Síðan fór ég á danska útgáfu á Hárinu í Aalborg. Var það nú ágætt en einhvern veginn minnti mig nú að Hárið væri frægt fyrir nektaratriðið sitt. Því var alla vega sleppt hér. Síðan var rosaleg hljómsveit sem spilaði en því miður var hún bara baksviðs en kom síðan í ljós í lokaatriðinu með látum. Sem sagt það sem ég hlakkaði mest til að sjá við danska hárið var nekt og tónlistarflutning en það var ógeranlegt.

En læt þetta duga þar sem það tók mig heila eilífð að setja þessi myndbönd inn og er það búið að taka allan mátt úr mér

Hilsen

Eyþór



15. maí 2007 klukkan 12:28
Eyþór Stefánsson
2 athugasemdir
11maí

af hverju er Eurovision bendlað við tónlist?

hej hej

  Er til æðra afl?  Er eitthvað þarna sem veldur því að hlutirnir enda eins og þeir enda?  Fyrir viku hefði ég ekki trúað þessu, en atburðarrásin síðan ég kom í þennan skóla hefur komið mér í skilning um annað.  Fyrst er ég settur í herbergi með einstaklingi sem lyktar eins og mygluð heyrúlla, eftir það er ég settur í herbergi með þeim Sören og Olsen.  Þess má nú svo til gamans geta að Olsen þessi var snarbilaður, svaf með hlaðna byssu undir rúmi og svona skemmtilegheit.  Svo var það hérna fyrir tveimur dögum þegar ég var í fastasvefni í kojunni minn að allt í einu brotnar hákojan og ég dett niður og fæ næstum því hjartaáfall.  Olsen næstum búinn að rífa upp byssuna og skjóta mann og annan... en já algjör heppni hreinlega að við stóslösuðum okkur ekki.  Þá hafði eitthvað pínulítið stykki brotnað og rúmið eyðilagðist.  Þá ákvað Troels kallinn að senda mig í enn eitt herbergið.  Það var drengur sem ég hafði nú ekkert kynnst fyrr en nú.  En það merkilega er nafn hans.. það er eitthvað meira en tilviljunin ein sem veldur því að núverandi herbergisfélagi minn heitir FREDERICK.....  Borið fram með eins dönskum framburði og þið getið hugsað ykkur......
 

  Svo var Eurovision í gær..  Það er svo gott að vera í Danmörku þá því að hér er öllum alveg hjartanlega sama um Eurovision keppnina, sem er snilldin ein.  Ég reyndi að horfa á þetta, sá fyrstu fimm lögin, ætla svo sannarlega ekki að gera mér það aftur að sjá þau á laugardaginn því önnur eins hörmung hefur bara ekki sést,  mér gæti ekki verið meira sama um að Ísland komst ekki áfram....  Hata Eurovision og það eru mörg mörg ár síðan við áttum að' hætta í þessari keppni...  Og halló þetta snýst líka um pólitík og menn hafa ekki ennþá gleymt því hér í Danmörku að við fórum að veiða hvali!!!!  En svo sá ég líka síðasta lagið og hef ákveðið að halda með því, Lettum það er að segja...

  Svo á morgun verður hér ægileg hátið þar sem gamlir nemendur koma alls staðar að úr heiminum og er búist við 300 manns.  Þetta er sem sagt það sem þeir kalla Elevmöde.  Á morgun á ég sem sagt að standa uppi á sviði og skemmta þessum nemendum með einhverjum lögum.  Lightning Crashes, Wake me up when september ends, Words og Here comes your man er plaið að taka.  Er pínulítið stressaður þar sem ég þarf nú að syngja eitthvað líka og finnst mér það alltaf vera stressandi...   En nokkrir öl fyrir og þá verð ég góður:)

  Nú er það búið að vera mér ofarlega í huga orð sem ég heyrði hvísluð út undan mér á Íslandi:  Í Danmörku eru allir með lús, og þú færð pottþétt lús.  Síðan þá er mér búið að klæja í hausinn.  Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema það að þegar ég spurði hinn snjalla Reykvíking hvort hann gæti gáð hvort ég væri með lús.  Nú vitna ég orðrétt í hann:  Hvað ertu búinn að vera að labba eitthvað hjá trjám og runnum,  ég : Ha?  Hann: sagðiru ekki að þú værir kannski með lús Ég: jú hvað kemur það trjám við?  Hann: Hefuru ekki heyrt um blaðlýs?

Best að taka það fram að samkvæmt mínum bestu heimildum er ég ekki með lús....

Hilsen

Eyþór sem er blaðlúsugur

 

11. maí 2007 klukkan 17:30
Eyþór Stefánsson
Engin athugasemd
07maí

Danir eru svo fatlaðir tónlistarlega ða það er hættulegt

hej hej

Jæja þá er maður búinn að ná sér alfarið af þessari leiðindapest.  Er nú tilbúinn í stórræði á ný.  Öll stórræði nema Powersport.  Þetta verður minn bani og ég ætla að grenja og grenja og grenja aðeins meira því í dag var ég að sjá dagskrána sem er framundan og þar var m.a. þríþraut (ég dó næstum því í tvíþraut) og maraþon takk fyrir!!!!  Ég hreinlega held að það verði uppgjöf þar sem að mér finnst bjór góður!!!!!!!!!

  Annars afrekaði ég afskaplega mikið í veikindunum.  Las Engla og Djöfla og er einnig kominn langleiðina með The Da Vinci Code.  Er núna að spá í að spá í að skrá mig úr þjóðkirkjunni þar sem að ég hef tekið þá ákvörðun að kokgleypa gjörsamlega við öllum þessum samsæriskenningum um Biblíuna og Maríu Magdalenu.

  Um helgina var ég nú bara alveg bláedrú..  Það var extra löng helgi þar sem Danir héldu heilagan St. Bedesdag eða eitthvað álíka á föstudag og þá var frí í skólanum.   Þá fóru svona 80 % nemenda heim til sín en flestir sem eftir voru fórum í einhvern skemmtigarð hérna sem hét alveg ábyggilega Fårup Sommerland.  Það var bara stuð, þar fórum við í ýmis tívolítæki, og grilluðum:)  Svo var ég bara í rólegheitum restina af helginni eins og flestir...

Næstu helgi er hins vegar ElevMöde, þar sem gamlir nemendur koma í heimsókn, þá verður held ég tekið á því.  Ætlum við margrómaða hljómsveit (sem er á barmi heimsfrægðar) að troða þar upp, réttara sagt að flytja 2 - 3 lög.  Á lagalistanum eru:

               Wake me up when september ends  - Green day
                                                              Words - Bee gees
                                             Lightning crashes - Live
                                      Here comes your man - The Pixies                                                 
                            The man who sold the world - Nirvana versionið af David Bowie laginu fræga

Var ég ekki örugglega búinn að nefna tónlistarlega fötlun Dana:)  Bað þá um að velja lög og þeir komu bara með Gavin Degraw, Green day og auðvitað þjóðsönginn sinn sem er Wonderwall.  Hvernig er hægt að nauðga lagi svona óhemju mikið.  Sú var nú tíðin að þegar undraveggurinn ómaði í eyrum mínum að unaðstilfinning fór um mig líkt og venjulega þegar ég heyri góða tónlist.  En nú er sú tíð farin fyrir bí, eftir að byrjað var að syngja þetta í söngtímum, með frekar slöppum gítarleikara, fæ ég svona kjánatilfinningu í hvert skipti sem ég heyrir þetta lag.  Svo vildu þeir endilega gera þetta hérna version:  http://www.youtube.com/watch?v=0RCsledgOU4   nokkuð nett bara.. kjánalegt bara þar sem ég er eini maðurinn sem kann á hljóðfæri.  Á fyrstu  æfingunni voru fyrir utan mig: einn slakur gítarleikari, 2 söngvari, tveir trommarar og einn ,, slagverksleikari"  Þeir voru eitthvað aðeins að misskilja hvað þarf að vera í hljómsveit.


Síðan er ég að fara á Aerosmith í Randers 8 júní og það verður stuð.  En svo er ég í bobba:(  Þann 26. júní er Damien Rice í Århus.  Sem þýðir að ég er að spá í að flytja á næstu lestarstöð í tvær nætur til þess að ná tónleikunum þar sem skólinn klárast rétt fyrir tónleikana.

 
en nú er talvan að verða batteríis laus svo þetta verður að duga í bili....

hilsen

   Eyþór
07. maí 2007 klukkan 00:53
Eyþór Stefánsson
1 athugasemd
12apríl

There are two emergency exits one in the front and one in the aft!!!!

Quote: Ofursnjalla flugfreyjan sem flaug með mig frá Egilsstöðum til borgar ótta, eymdar og volæðis. Ef að einhver vill sjá hvernig ógeðslegu krakkahorbjóðirnir sem neyðast til að alast þarna upp enda vil ég benda á þessa slóð ef ske kynni að einhver hafi ekki séð þetta http://69.is/openlink.php?id=52900 http://69.is/openlink.php?id=52900

En ég er mættur í Danaveldið aftur og lenti þar í sæmilegu lagi. Alveg dýrka að fljúga í þrjá tíma og fara svo í lestarferð í eina fimm tíma. Eintóm hamingja og mikið sofið á leiðinni og prísa ég mig nokkuð sælan að hafa ekki verið rændur þar sem ég sofnaði með fartölvuna á glámbekk. Nú er maður byrjaður að hlaupa allan bjórinn af sér, ekki veitir af þar sem leiðinlega mikið magn af Viking Gull rataði inn fyrir manns varir í páskafríinu sem var bara allt í lagi. Sumblið hjá mér á Íslandi kostaði mig álíka mikið og ölkostnaður í heilan mánuð hérna í Danmörku sem er hins vegar ekki í lagi.

Ég er svolítð hnugginn þessa dagana þar sem að ég uppgötvaði hversu sniðug græja Ipod er, tala nú ekki um þegar maður er að þykjast vera einhver íþróttamaður. Af hverju er ég hnugginn yfir því? Svarið er að foreldrar mínir fóru á Kanarí og ég laumaði því nú lúmskt inn hjá þeim að það væri nú alveg sniðugt að koma með einn Ipod til baka. Þegar þau koma heim hringja þau í mig og segjast hafa keypt fyrir mig eitt stykki 20 gb Ipod. Ég var nú meira en lítið sáttur með þetta allt saman. Svo kem ég heim og fæ afhenta græju sem var svona örlítið öðruvísi en ég bjóst við. Ég fékk sem sagt Yepo.... græja sem var kolómögulegt að brúka, og manni hefði verið strítt á af reykvískum krökkum. Eftir mikið tiltal ákvað ég að tékka örlítið á þessu og gefa þessu örlítinn séns, neineinei þá kom í ljós að þetta voru 200 mb 50 lög eða svo. Það virkar bara ekki en auðvitað er það hugurinn á bakvið og fannst mér leiðinlegt að hamra því í hausinn á foreldrum mínum að þetta gæti ég bara ekki notað. Núna er það næsta verkefni að kaupa sér 8 gb IPOD nano en því miður kostar hann peninga, 24000 kr í fríhöfninni

Getur einhver sagt hvers vegna Ómar Ragnarsson er nálægt því að fá 5% fylgi samkvæmt skoðanakönnunum? Maðurinn er útbrunninn skemmtikraftur sem búinn er að missa vitið (sbr. að hann vildi rífa Kárahnjúkastíflu niður til merkis um heimskupör mannanna) sem á tvímælalaust ekki heima á Alþingi okkar Íslendinga. Maðurinn fékk tekjur sínar af því að leika Gáttaþef í Denn. Come on Íslendingar Jakob Frímann er þarna og listi með slíkan endemis enda fær sko ekki minn stuðning. Og það furðulega er að ef hann nær þessum 5 % sínum er meirihlutinn fallinn því þá fær hann þrjá menn inn. Stórmerkilegt nokk, hvað næst, Laddi á þing? Sveppi? Silvía Nótt??!!!!!! Því greinilegt er það að menn þurfa ekki annað en að vera frægir og hafa aðeins eitt mál á stefnuskránni til þess að stofna stjórnmálahreyfingu sem actually fær einhvern stuðning. Þetta finnst mér bara ótrúlegt!!!! En eins og Bogi Kárason sagði mér í páskafríinu þá á ég ekkert að vera alvarlegur í bragði bara fíflast út í eitt með einhver sniðugheit þannig að nóg komið um Íslandshreyfinguna...

Síðan er það helsta í fréttin frá Klakanum að Reddingaþjónusta Leifs Lákasonar hefur brugðist. Gamla kjörorð þjónustunnar Bregst aldrei hefur verið breytti í Bregst aldrei nema einu sinni . Þó svo að ég skilji ýmsar ástæður fyrir því að hann vildi ekki skutla mér á ball á Eskivík breytir það nú ekki þeirri staðreynd að hann brást, en vann sig reyndar upp í áliti þegar hann reddaði mér páskaeggi um miðja nótt, sem ég gleymdi reyndar að éta. Reyndar gleymdi ég því alfarið að fá mér páskaegg í páskafríinu.

Síðan var haldinn stjórnarfundur í DDFC (Doðrant Dívan Football Club) Þar var ákveðið ýmislegt og t.a.m. var þar rætt að halda fótboltaæfingar tvær frekar en eina í páskafríinu. Missti ég alfarið af þeim, en læknisvottorð fyrir axlarmeini er á leiðinni til stjórnameðlima í pósti svo að ekki verður hægt að ásakast við mig að æfingarnar fóru úrskeiðis. Það var eitt atriði sem klúðraðist á to do listanum í páskafríinu. Þó tókst mér að fá mér rauðvín með Betu og fara fyrir utan KB Banka og drekka þar öl með Hnakkadjöflinum og Bergsteini. En fundargerðinni mun ég trúlega henda inn á þessa síðu í mjög náinni framtíð.

En ætli þetta sé barasta ekki nóg í bili, það held ég. Kannski maður sé að gleyma einhverju markverðu, nei held ekki eða hvað? Jú gleymdi að segja frá því að allir vinir mínir á Íslandi eru aumingjar sem snerta varla orðið á áfengi og heyrir það orðið til undantekninga ef svo gerist, skammist ykkar þið eruð til háborinnar skammarÖskrandi Þeir taki þetta til sín sem eiga það skilið, aðallega Leifur Lákason samt


Hilsen............... Eyþór
12. apríl 2007 klukkan 17:03
Eyþór Stefánsson
5 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...